Bloggfærslur mánaðarins, mars 2012

Frí á sunnudag en leikur á mánudag

Það er frí á æfingu á sunnudaginn :( en það er leikur á mánudaginn við IBV, mæting í hann er kl 1230 í vallarhúsið. Leikurinn byrjar kl 1330.

 kv Dúfa


Fundur ef foreldara ykkar hafa áhuga.

Súpufundur KSÍ verður haldinn í hádeginu föstudaginn 30. mars

 

Næsti súpufundur KSÍ verður haldinn föstudaginn 30. mars. Að þessu sinni mun Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ, fjalla um fæðingardagsáhrif í knattspyrnu. Þetta málefni hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu og meðal annars var Sigurður Ragnar í viðtali á Bylgjunni nýverið vegna þessa. Viðtalið má nálgast hér: http://vefutvarp.visir.is/upptokur?itemid=10282

 


 Líkt og áður hefur verið á þessum fundum verður fyrirkomulagið 30-40 mínútna fyrirlestur og svör við spurningum. Jafnframt mun KSÍ bjóða gestum upp á súpu og brauð á þessum fyrirlestri og því upplagt að skella sér í heimsókn til KSÍ, hlýða á áhugavert erindi og fá sér hádegismat í leiðinni.

 

Þessi áttundi fræðslufundur verður haldinn föstudaginn 30. mars klukkan 12:15 á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ við Laugardalsvöll. 

 

Aðgangur er ókeypis og opinn öllum áhugasömum en þó þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is og taka fram nafn, kennitölu og netfang.


þriðjudagur

Minni á æfinguna á morgun  kl 17-1830. Mikilvægt að mæta á réttum tíma.

 

kv Dúfa


Æfingaleikur á morgun

Minni á æfingaleikinn á morgun á móti Breiðablik í Fífunni . Mæting kl 17:00 en leikurinn byrjar kl 18 og spilum 2x30 min .

 

kv Dúfa


Breyting á morgun Þriðjudag

Breyting á morgun Þriðjudag

Það er breyting a morgun þriðjudag, æfingin byrjar kl 1630 en ekki 16:00.

Hun er því frá 1630 - 1730

þið megið endilega kvitta ef lesið þetta.

kv Dúfa og Jónsi


Æfingaleikur á miðvikudaginn

það er staðfest að það er leikur við Breiðablik 2 á miðvikudaginn kl 18-19 inni í Fífunni. Spilum 2x30 mín. Getið þið kommentað hérna um hvort þið komist eða ekki.

 kv Dúfa


Breyttur æfingatími á morgun miðvikudag.

Æfingin á morgun er kl 19:30 til 21:00 í Fífunni með meistaraflokk. Það er bara í þetta eins skipti.

Mæta með hlaupaskó og takkaskó. Hlaup fyrstu 30 min af æfingunni. 

 

kv Dúfa


kynning á mánudag

Mánudaginn 12. mars verður kynning á Ásvöllum á Afrekssviði Hauka og
Flensborgar kl. 21:15. Kynningin mun taka um 30 mínútur og er
sérstaklega hugsaður fyrir iðkendur Hauka fæddir 1996 og forráðamenn
þeirra. Aðrir áhugasamir um afreksstarf Hauka eru að
sjálfsögðu velkomnir á fundinn.

buið að fresta leiknum á morgun

ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ FRESTA LEIKNUM Á MORGUN LAUGARDAG, VEGNA SNJÓA Á VELLINUM OG VONDRI VEÐURSPÁ. LÁTA ÞETTA GANGA .

þriðjudagur

Minni á æfinguna í dag þriðjudag hún byrjar kl 1630 og er til 18:00 . Koma með hlaupaskó því fyrstu 30 min eru bara rólegt skokk.

 kv Dúfa


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband