Greiðsla vegna Danmerkurferðar
19.6.2014 | 09:42
Kæru foreldrar
Nú þarf að bregðast skjótt við og greiða fargjald stelpnanna til Vildbjerg í Danmörku.
Verð á ferðinni per stelpu er 137.700 flestar hafa þegar greitt staðfestingargjald og því á eftir að greiða 112.700 til Úrval útsýn, hvert og eitt foreldri verður að setja sig í samband við Luka eða Sesselju hjá Úrval og Útsýn. Við mælum við með að fólk greiði með kreditkorti til að hafa viðeigandi tryggingar.
Einnig á sama tíma þarf að greiða kr. 13.050 inn á reikning 0162-26-103829 kt. 080576-3829 ( kostnaður vegna þjálfara og 1. fararstjóra)
Síðar verður rukkað fyrir á skemmtigarðinn sem farið verður í og annað sem verður ákveðið að gera í ferðinni.
Tölvupóstur hefur verið sendur á foreldra með þeirri upphæð sem hver stelpa á inni á sínum reikningi núna.
Kveðja,
foreldrastjórn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.